
Fisfélagið Sléttan

15 febrúar 2015
Heppnin er oft með okkur á Sléttuni
Konni náði að redda okkur hurðunum af gömlu smurstöðinni ofan af velli sem nú er orðið gagnaver og fengum við gefins hurðirnar ásamt festingum og rennibitum , og fórum við Bjarni Sveins og Konni rétt fyrir helgi að sækja hurðarnar , ekki var veðrið beysið gekk á með dimmum éljum og rok en það hafðist , svo þurfti að koma hurðunum á Sléttuna en það var búið að skafa hressilega í vegin með pípunni en ég komst alla leið með fargið en hurðar og festingar eru um 700 kg, og varð ég að fara á fartinu upp Böðvarsbrekkuna en Súbarú náði að krafla sig upp.
Nú er að bíða veðurs til að máta hurðarnar og setja upp.
svo þarf að athuga þéttingar á hurð á skýli 2 , skefur inn í vestanáttum.
Konni fær mikla þökk frá félaginu fyrir reddinguna.
Formaður